Skráarsafn fyrir May, 2009

May 31 2009

Police Slog Through 40,000 Insipid Party Pics To Find Cause Of Dorm Fire | The Onion

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

The Onion: Lögreglan rannsakar eldsupptök með aðstoð Facebook mynda.

Engin ummæli enn

May 31 2009

Um tilgangsleysi allra hluta » Blog Archive » Stjórnmálagetraun

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Stefán Pálsson rifjar upp skoðanir Tryggva Herbertssonar á niðurfellingu skulda.

Engin ummæli enn

May 29 2009

Hallir Saddams

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Myndasería um hallir Saddams Hussein og hvernig þær eru notaðar í dag. (via Kottke)

Engin ummæli enn

May 28 2009

Champions League final: Barcelona v Manchester United

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Fyrir þá sem misstu af því þá voru Manchester United niðurlægðir af Barcelona í úrslitum Meistaradaildarinnar. United menn voru ótrúlega slappir, engin barátta og engin geta. Það gladdi mig.

Engin ummæli enn

May 26 2009

Ísland 2.0

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég er staddur á Íslandi. Verð hérna fram á næsta þriðjudag. Er búinn að hitta ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki, borða fáránlega mikið af mat og njóta lífsins í botn.

Ég blogga seinna.

Engin ummæli enn

May 26 2009

Hnakkus: Siðapostular leggja til atlögu

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Hnakkus hinn mikli bloggar um fréttaauka á RÚV.

Engin ummæli enn

May 20 2009

Ghost of Tom Joad – Bruce Springsteen Tom Morello

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Frábær útgáfa af Ghost of Tom Joad þar sem að Tom Morello úr Rage against the Machine spilar á gítar.

Engin ummæli enn

May 17 2009

Sunnudagur, Madríd og Eurovision

Einar Örn skrifaði í flokkinn Dagbók, Ferðalög

Ég er snillingur í að eyða sunnudögum í ekki neitt. Ég ætla að rembast við að breyta því eitthvað í dag. Margrét er að vinna, þannig að ég sit hérna í eldhúsinu og hlusta á Ghost of Tom Joad. Það eru ekki nema rétt rúmar tvær vikur í Springsteen tónleikana og ég er ótrúlega spenntur.

Ég er búinn að vera að rúlla í gegnum allt Springsteen safnið mitt. Ég er m.a.s. farinn að hlusta aftur á Born in the U.S.A., sem ég hafði einhvern veginn útilokað þar sem ég fékk svo mikið ógeð á titillaginu. En mikið afskaplega eru lög einsog No Surrender og Downbound Train frábær. Springsteen er snillingur og ég hef ekki verið svona spenntur fyrir tónleikum síðan ég sá Radiohead í Chicago.

* * *

Ég var í Eurovision grilli og partíi í gær í úthverfi Stokkhólms. Ég held að Íslendingar hafi haft gott af þessu kvöldi. Miðað við umræðuna mætti áætla að ansi margir heima haldi að allir í Evrópu hati okkur, en ég held að það sé ansi fjarri sannleikanum. Vissulega hefur orðspor okkar í viðskiptum farið ansi neðarlega, en almennt held ég að ástandið sé ekki svo slæmt. Mig minnir að ég hafi gefið portúgalska laginu hæstu einkunnina – ég verð sjálfkrafa meira hrifinn af lögum þegar þau eru ekki sungin á ensku.

* * *

Ég og Margrét fórum í helgarferð til Madríd um síðustu helgi. Einn af kostunum við að búa í Stokkhólmi er að héðan er auðvelt að taka bein, ódýr flug til allra mögulega borga. Það er nánast frelsandi að þurfa ekki að treysta á Icelandair og millilendingu á helvítis Heathrow til að komast leiða sinna.

Ég hef einu sinni áður komið til Madríd. Það eru þó um 10 ár síðan og ég man ekki mikið frá þeirri ferð. Ég fór þú á Molotov tónleika, sem var upplifun og svo fékk ég heiftarlega matareitrun af því að borða baguette með beikoni. Það var eiginlega mér að kenna því auðvitað á maður ekki að panta baguette með neinu öðru en skinku í Madríd.

Madríd er skemmtileg borg. Hún er ekki jafn falleg og Barcelona (sem ég hef komið 7-8 sinnum til), en hún er umtalsvert stærri og öðruvísi. Allavegana, við vorum þarna í fjóra daga og skoðuðum helstu túristastaði. Við löbbuðum í kringum Plaza Mayor og Plaza del Oriente þar sem að konungshöllin er. Við skoðuðum Reina Sofia þar sem að Guernica eftir Picasso er til sýnis og svo skoðuðum við Prado safnið, sem er auðvitað ótrúlegt listasafn þar sem að flestöll verk eftir Velazquez og Goya eru geymd.

Við borðuðum líka ótrúlega góðan mat. Ég gjörsamlega elska Jamón Iberico og held að mér hafi tekist að borða það fjórum sinnum í ferðinni. Svo borðuðum við á nokkuð authentic mexíkóskum stað, á frábærum tapas börum og öðrum góðum stöðum. Og við fórum á djammið á klúbbunum í Madríd þar sem Margrét afrekaði það að tala sig fram fyrir röð á tveim stöðum þar með talið einum þar sem við komumst að því að var hommakvöld (við föttuðum ekki að það voru bara strákar í 50 manna röðinni).

Frábær ferð og ég setti inn nokkrar myndir á Flickr.

* * *

Á föstudaginn förum við svo í heimsókn heim til Íslands og verðum þar í 10 daga. Ég er spenntur fyrir því.

Engin ummæli enn

May 16 2009

My Personal Credit Crisis – NYTimes.com

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Viðskiptapenni hjá New York Times lýsir því hvernig hann lenti í skuldafeni útaf dýru húsi og kreditkortum.

Engin ummæli enn

May 15 2009

Allir ættu að horfa á The Office

Einar Örn skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Ég lenti í samtali um jólin og svo í öðru samtali við góðan vin minn mjög nýlega, sem komu mér gríðarlega á óvart. Ég komst nefnilega að því að það horfa ekki allir á The Office!

Fyrir okkur hin, sem horfum á The Office í hverri viku, er erfitt að ímynda sér þetta. Ég held að partur af ástæðunni gætu verið fordómar gagnvart bandarísku sjónvarpsefni. Hinir tólf bresku þættir sem voru framleiddir voru svo stórkostlegt sjónvarpsefni að ég hélt að þeir yrðu aldrei toppaðir og þegar ég sá fyrstu þættina í bandarísku seríunni þá fannst mér þeir svo slæmir að það var nánast pínlegt.

dwight-andy

En The Office var, þrátt fyrir daufa byrjun, haldið áfram í framleiðslu og núna er að ljúka í Bandaríkjunum fimmtu seríunni. Þættirnir hafa á þessum 5 árum styrkst gríðarlega (með smá lægðum inná milli þó) og serían, sem nú er að klárast, er að mínu mati sú besta. Þetta eru einfaldlega bestu grínþættirnir í sjónvarpi í dag. Karektarnir eru nánast allir frábærir, jafnt þeir sem skipta mestu máli uppá grínið (Michael, Dwight og Andy) til þeirra sem koma fram kannski einu sinni í þætti (Kelly, Creed, o.s.frv).

Þannig að skilaboð mín til ykkar eru einföld. Horfið á The Office. Þetta eru stórkostlegir þættir og fólk hefur enga ástæðu til að horfa ekki á þá. Ég skil það alveg þegar að fólk segir við mig að það horfi ekki á LOST (sem eru hinir uppáhaldsþættirnir mínir) en fyrir því að horfa ekki á The Office eru engar afsakanir.

11 ummæli hingað til

May 14 2009

Megn óánægja með stjórnarsáttmálann – Frétt – AMX

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Sennilega óvæntasta frétt ársins: “Félög ungra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi lýsa yfir megnri óánægju með stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnarquot”

Engin ummæli enn

May 12 2009

Hallgrímur Thorst » Tilraun til lýðræðis

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Hallgrímur fjallar um ESB viðræðukosningar.

Engin ummæli enn

May 06 2009

ESB aðildarviðræður

Einar Örn skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Þetta er ágætis áminning fyrir þá sem standa í stjórnarmyndunarviðræðum fyrir hönd Samfylkingarinnar. 61,2% þjóðarinnar vill aðildarviðræður við ESB. Þar af nánast allir þeir sem styðja Samfylkinguna.

Ég er viss um að ég er ekki eini kjósandi Samfylkingarinnar, sem mun eiga erfitt með að styðja flokkinn aftur ef að flokkurinn ætlar sér að sitja í ríkisstjórn, sem mun ekki stuðla að aðildarviðræðum við ESB strax í sumar.

3 ummæli hingað til

May 05 2009

Silfur Egils » Er ekki best að þingið ráði þessu?

einarorn skrifaði í flokkinn Tenglar

Egill Helga skrifa fínan pistil um nýjasta Íhaldsupphlaupið.

Engin ummæli enn

May 04 2009

Tónleikar á næstunni

Einar Örn skrifaði í flokkinn Tónleikar

Í morgun keypti ég tvo miða á Green Day, sem munu spila í Globen í Stokkhólmi í október. Það er hreinasta snilld. Ég er verulega spenntur fyrir nýju plötunni þeirra, en sú síðasta American Idiot var hreint ótrúlega góð. Einnig hef ég heyrt að þeir séu frábært tónleikaband.

Við sjáum myndband:

Næstu mánuðir líta því hreint ótrúlega vel út: Bruce fokking Springsteen í byrjun júní. Svo Where the action is – Hátíð hérna í Stokkhólmi með Neil Young, Pixies, Duffy og Nick Cave. Og svo Green Day í október.

9 ummæli hingað til