Oct
31
2009
Í lok vikunnar ætlum við að loka veitingastaðnum Síam.
Við keyptum staðinn sumarið 2007 af stofnendum hans. Emil þekkti til þeirra hjóna og vissi að þau höfðu áhuga á að hætta rekstrinum. Við höfðum áhuga á húsnæðinu fyrir Serrano stað og það kom fljótlega til tals að við myndum líka kaupa Síam reksturinn af þeim þar sem að okkur fannst maturinn ótrúlega góður og okkur langaði til að halda staðnum opnum áfram.
Það varð því af þeim kaupum í lok sumars 2007. Við eyddum miklum tíma í að læra allt um staðinn. Í margar vikur vorum með fólk frá okkur í eldhúsinu að læra af Tim, sem hafði eldað réttina eftir minni í mörg ár. Engar uppskriftir voru til á staðnum og þurftum við því að skrifa þær upp frá grunni og skipuleggja aðra vinnu í eldhúsinu. Við breyttum húsnæðinu líka og minnkuðum aðeins salinn á Síam til að fá meira pláss undir Serrano.
* * *
Nú höfum við rekið staðinn í rúm 2 ár og það er ljóst að reksturinn er ekki að ganga upp. Salan er aðeins meiri en hún var þegar að þau hjón hættu, en við höfðum auðvitað vonir um að auka söluna umtalsvert. Það hefur ekki tekist og því verðum við að horfast í augu við þær staðreyndir. Síam er bara örsmár hluti af veltu Serrano, en staðurinn tók samt alltof mikinn tíma fyrir yfirstjórn og aðra. Tilraunir til þess að lengja opnun, bæta þjónustu og lækka verð umtalsvert (í mikilli verðbólgu) hafa lítið hjálpað. Heldur ekki aukin áhersla á heilsusamlega rétti.
Á staðnum þar sem Síam er rekinn er líka vinnslueldhús Serrano og svo einnig Serrano staður. Vegna gríðarlega mikillar sölu á Serrano var staðan orðin þannig að vinnslueldhúsið var búið að sprengja utanaf sér allt húsnæði og þess vegna varð sífellt erfiðara að standa í rekstrinum á Síam þar sem að við þurftum á plássinu að halda undir eldhúsið. Það leiddi á endanum til þess að við ákváðum að loka Síam.
Nú má spyrja sig hvað við gerðum vitlaust. Því eitthvað hljótum við að hafa gert vitlaust því okkur tókst ekki að ná á staðnum upp þeirri sölu sem við ætluðum okkur.
Maturinn. Þetta var það erfiðasta fyrir okkur. Það að taka við stað þar sem að einn maður hafði eldað allt í fleiri ár og reyna að reka hann árið 2007 var erfitt. Gríðarleg starfsmannavelta var á þessum tíma og við lentum trekk í trekk í að missa fólk útúr eldhúsinu, sem þýddi að við þurftum að þjálfa fólk uppá nýtt og lentum í sömu vandræðum aftur og aftur.
Við höfum ekkert reynt að spara í eldhúsinu – planið okkar var alltaf að halda sama standard þar. Í raun jukum við til að mynda við kjötskammta í réttunum og héldum sama standard í innkaupum. En hringlið á starfsfólkinu í eldhúsinu ollu því að maturinn klikkaði oft. Taílenskur matur er ekki auðveldur í eldun og tímasetning ræður þar miklu. Það var ekki auðvelt að ná því á hreint með mikilli veltu á starfsfólki.
Staðsetningin er ekkert rosalega góð, en það vissum við svosem fyrir. Og staðurinn var eiginlega á milli þess að vera fínn staður og take-away staður. Gæði matarins voru næg fyrir fínan stað en útlit staðarins réttlæti það ekki. Þannig var hann kannski hvorki fugl né fiskur.
Þjónustan. Ansi margir kúnnar höfðu verslað við staðinn í mörg ár. Það var kósí að koma inná Síam þegar að annar eigandi staðarins var alltaf þar til að taka á móti þér. Þau hjón gátu hins vegar einfaldlega ekki staðið lengur í rekstrinum og þótt að við höfum gert okkar besta til að halda uppi sama standard, þá voru margir kúnnar í því að bera saman þjónustuna þegar að annar eigandinn var að afgreiða við þjónstuna hjá okkur – og útúr því komum við ekki alltaf vel. Við löguðum þó ýmislegt við þjónustuna, til að mynda afgreiddum við alla sem hringdu (áður var síminn tekinn af þegar mikið var að gera) og svo framvegis.
* * *
Allavegana – þetta gekk ekki upp. Þrátt fyrir að mér persónulega hafi fundist þetta vera besti taílenski matur á landinu, þá náðum við aldrei þeirri sölu sem við gerðum okkur vonir um (Ég hef í raun ekki enn fundið betri taílenskan mat hérna í Stokkhólmi – þó hér sé allt fullt af taílenskum stöðum).
Og því ákváðum við fyrir nokkrum vikum að loka. Serrano gengur gríðarlega vel og þar eru spennandi hlutir að gerast – bæði heima og hérna í Svíþjóð. Það var raunar orðið svo að vinnslueldhús Serrano var búið að sprengja utanaf sér allt pláss og mun því plássið, sem áður var undir Síam, koma sér vel. Þetta ár á Serrano hefur verið það besta í sögu fyrirtækisins og við slógum sölumet í ágúst og aftur í september.
Síam hefur tekið upp mikinn tíma hjá okkur og okkur þótti vænt um staðinn og matinn. En á endanum var það ekki nóg og staðurinn mun loka 9.nóvember. Við eigum þó ennþá uppskriftirnar og reynsluna, þannig að kannski munum við opna staðinn aftur við tækifæri á öðrum stað.
Oct
30
2009
Síðustu vikur hafa verið nokkuð annasamar. Það er mikið í gangi varðandi Serrano hérna í Svíþjóð og auk þess höfum við Margrét verið með gesti.
Mamma Margrétar og litli bróðir eru nýfarin heim til Íslands. Eiginlega um leið og það gerðist uppgötvaði Margrét að í íbúðinni voru einhverjir maurar byrjaðir að éta sig í gegnum fötin hennar. Ég kippti mér ekkert sérstaklega upp við það enda á hún nóg af fötum, en það endaði þó þannig að við eyddum megninu af gærdeginum heima, hreinsandi öll föt útúr skápum, ryksugandi íbúðina og annað skemmtilegt.
Heimsókn mömmu og bróður Margrétar var skemmtileg. Jón Jökull litli bróðir Margrétar kom hingað fullur sjálfstraust og lét einsog það væri ekkert sjálfsagðara en að segjast styðja Manchester United inná mínu heimili. Ég lét auðvitað ekki bjóða mér það og við tók sjö daga æfingabúðir, þar sem honum var gerð grein fyrir því að Liverpool sé besta lið í heimi. Hann fékk til að mynda ekki að spila Fifa nema með því að lofa því að velja aldrei Manchester United.
Ekki versnaði málstaður minn við það að ég fór ásamt honum og Villa á O’Learys þar sem við sáum Liverpool niðurlægja United. Eftir nokkra vikna leiðindi var þetta ótrúlega kærkominn sigur.
* * *
Við túristuðumst aðeins með þeim um Stokkhólm. Margrét hafði þó aðeins meiri tíma þannig að ég var eitthvað minna með þeim. Á laugardaginn löbbuðum við um Gamla Stan og miðbæinn, fengum kaffi í Kulturhuset og fleira. Um kvöldið fórum við svo á tónleika með Muse í Hovet.
Það eru sex ár síðan að ég og Friðrik sáum Muse í Laugardalshöllinni. Það voru frábærir tónleikar. Tónleikarnir í Hovet voru líka góðir. Muse er ekki í alveg jafn miklu uppáhaldi hjá mér núna og þeir voru þá, en þeir eru samt fínt tónleikaband. Þeir tóku nokkur gömul lög og svo 5-6 lög af nýju plötunni.
Oct
30
2009
Mörður Árnason · Ráða skattinum sjálfir. Mörður Árna um furðulegar tillögur SA (og ASÍ) um að hækka tryggingargjald í stað þess að leggja á orkuskatt.
Oct
26
2009
Liverpool Bloggið » Liverpool 2 – manchester united 0. – Liverpool vann Manchester United í gær. 2-0 á Anfield. Ég öskraði og dansaði þegar að mörkin voru skoruð. Og svo skrifaði ég leikskýrslu á Liverpool bloggið.
Oct
20
2009
Apple – iMac – The ultimate all-in-one desktop computer.. – Apple uppfærði í dag desktop línuna sína með nýjum Mac Mini og ótrúlega fallegum nýjum iMac tölvum, sem innihalda m.a. alveg endurhannaða mús. Þessi mús lítur ótrúlega vel út.
Oct
19
2009
Ástarbréf og Reykjavíkurbréf – vthorsteinsson.blog.is. – Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar um magnað Reykjavíkurbréf og endurhverf viðskipti Seðlabankans. Góð grein.
Oct
18
2009
Ég var að fatta það að ég hef nánast ekkert skrifað hingað inn af viti síðan að ég kom frá Íslandi. Þar sem að ég er einn heima þá ætla ég að reyna að bæta úr því. Ég var að koma inn eftir hausthreingerningu hérna í húsinu þar sem við gengum frá sumarhúsgögnunum, settum grillið niður og ég reytti ósköpin öll af arfa á milli þess sem ég spjallaði við nágrannana.
Helgin er annars búin að vera róleg. Ég og Margrét fórum útað borða á litlu argentísku steikhúsi hérna á Söder í gærkvöldi, þar sem við fengum fínan mat. Ég var furðu hress miðað við hversu leiðinlegur Liverpool leikurinn fyrr um daginn hafði verið.
Síðasta helgi var nokkuð skemmtilegt. Emil var hérna í heimsókn í fyrsta skipti síðan í vor. Við eyddum slatta tíma á flakki um borgina til að skoða þær staðsetningar sem koma til greina fyrir nýja Serrano staði. Á laugardagskvöldinu fórum við svo útað borða með nokkrum vinkonum Margrétar á East. Við höfum farið áður á þann stað og verið gríðarlega ánægð, en vorum óheppin í þetta skiptið. Eftir það fórum við svo á djammið á Ambassadeur, sem er fínn klúbbur sem er ólíkur flestum klúbbum í Stokkhólmi að þar er (ótrúlegt en satt) stundum góð tónlist spiluð. Margrét og ég vorum reyndar tvö á djammi á þessum sama klúbbi helgina áður þar sem var meiriháttar gaman.
* * *
Við Margrét fórum svo á Green Day tónleika í Globen á sunnudaginn. Margrét gerir tónleikunum ágæt skil á síðunni sinni. Þetta voru frábærir tónleikar. Síðustu tónleikar sem ég fór á í Globen voru með Oasis og munurinn á þessum tveim hljómsveitum var gríðarlegur. Oasis nenntu þessu varla og virtust bara vilja klára settið sem fyrst. Green Day höfðu hins vegar gaman af þessu. Þeir spiluðu öll sín bestu lög (hérna er hægt að sjá set-listann (26 lög – geri aðrir betur) – ég hefði í raun bara bætt Jesus of Suburbia við) og þeir virtust njóta hverrar mínútu. Spilamennskan var frábær og Billie Joe gerði allt sem hann gat gert til að ná stemningunni upp eins mikið og hægt er í Globen, sem er ekki auðveldasti staður í heimi til að halda tónleika á.
Það eru sennilega einhver 14 ár síðan að ég heyrði fyrst í Green Day þegar að Björn Arnar, sem var samferða mér í Verzló flesta daga spilaði diskinn fyrir mig. Ég hlustaði gríðarlega mikið á þann disk og svo á Insomniac, sem kom á eftir. En svo missti ég áhugann og í fleiri ár hlustaði ég lítið á sveitina. Alveg þangað til að ég keypti mér American Idiot nokkrum mánuðum eftir að sú plata kom út. Hún er í miklu uppáhaldi hjá mér enda algjörlega frábær plata. Nýja platan, 21st century breakdown er svo líka fín, þótt hún nái ekki sömu hæðum og American Idiot – en lög einsog 21 guns eru frábær.
Þessir tónleikar voru allavegana allt sem ég hafði vonast eftir
* * *
Annars er haustið komið hérna í Stokkhólmi, það var verulega kalt í síðustu viku en það hefur lagast um þessa helgi og núna er úti sól og ekki svo mikill kuldi. Við eigum svo von á slatta af fólki í heimsókn frá Íslandi. Mamma Margrétar og litli bróðir hennar koma í næstu viku og svo Eva María vinkona hennar þar á eftir – sömu helgi og Emil & Ella koma líka í heimsókn. Það verður fjör.
Oct
14
2009
Matt Taibbi – Taibblog – On the Nobel Prize for Occasional Peace – True/Slant. – Matt Taibi skrifar um fáránleika þess að Obama hafi fengið Friðarverðlaun Nóbels.
Oct
14
2009
YouTube – Áramótaskaup Sjónvarpsins 2006 – Hluti 6 af 6. - Stórkostlegur endir á áramótaskaupinu árið 2006. Fyrst trailerinn að myndinni um Baugsmálið og svo Orkuveitulagið.
Oct
07
2009
Bruce Springsteen News: brucespringsteen.net – Núna er heildarútgáfa af Wrecking Ball með Bruce Springsteen komin á heimasíðuna hans. Orð fá ekki lýst því hveru mikill snillingur þessi maður er. Þetta er klárlega uppáhaldslagið mitt í dag.
Oct
07
2009
Samstarf við AGS er besti (og eini) kosturinn í stöðunni – vthorsteinsson.blog.is – Góð grein hjá Vilhjálmi um AGS og skort á hugmyndum andstæðinga AGS leiðarinnar um það hvernig þeir ætla að leysa fjárhagsvanda Íslands á næstu árum.
Oct
05
2009
Ég er búinn að setja inn annan hluta af myndunum frá Indónesíu inná Flickr.
Í þessu setti eru myndir frá því þegar við vorum í Ubud á Bali, svo á Gili Trawangan þar sem að Margrét lærði að kafa. Svo myndi frá Lombok og að lokum myndir frá því þegar við komum aftur til Bali þar sem við gistum í Kuta og Seminyak.
Myndin hér að ofan er tekin við sólsetur í Kuta á Lombok.
Oct
02
2009
Bruce Springsteen debuts new song, ‘Wrecking Ball,’ at Giants Stadium – Bruce Springsteen er núna í vikunni að spila á tónleikum í New Jersey, sem að verða síðustu tónleikarnir á Giants vellinum. Hann mun meðal annars á tónleikunum spila alla Born To Run. En allavegana, Bruce kynnti á miðvikudag nýtt lag, sem heitir Wrecking Ball. Hérna er það (þó ekki allt). Það er dúndurgott.
Oct
01
2009
The Billion Dollar Gram | Information Is Beautiful – Mögnuð teikning þar sem kostnaður við bandarísku fjármálakrísuna er borinn saman við hluti einsog að færa alla heimsbyggðina í átt til endurvinnanlegrar orku – og þess að bjarga Amazon frumskóginum.