Við Margrét höfum nokkuð lengi reynt að fá borð á Zink, en það hefur verið erfitt. Á þessum stað þarf oftast að bóka með minnst viku fyrirvara. Zink er á Biblioteksgatan, á milli fjölmargra fatabúða. Staðurinn er blanda af bar og veitingastað og er opinn allan daginn – þarna er seldur morgunmatur, hádegismatur, kaffi og kvöldmatur.
Við pöntuðum okkur blöndu af charcuterie kjöti. Frá parma skinku yfir í grillaða önd. Það er frábær forréttur. Í aðalrétt pöntuðum við hamborgara og club samloku. Matseðillinn er blanda af svona casual réttum einsog við pöntuðum og svo fínni réttum. Á laugardagskvöldi er þarna allt stappað af fólki að borða og drekka á barnum. Frekar mikill Östermalms fílingur – fólk með Louis Vutton töskur og svoleiðis fjör.
Um staðinn
Verðflokkur: Dýrt (aðalréttir 190-280 sek)
Heimasíða: Zink Grill
Heimilisfang: Biblioteksgatan 5
Hverfi: Östermalm
Matur: Franskur, evrópskur
Einkunn okkar (1-5): 4